NAKTA-HÚSIÐ Í KAWAGOE, EFTIR SHIGERU BAN




Shigeru Ban, þekktur á alþjóðlegum vettvangi sem "pappírs-arkitektinn" vegna þess að hann notaði pappírssívalninga til þess að reisa skýli fyrir heimilislausa eftir jarðskjálftana í Kobe og Tyrklandi, var beðinn um að hanna hús fyrir fjölskyldu sem samanstóð af þremur kynslóðum. Lausnin fólst í húsi án skilrúma sem túlkaði þá japönsku heimspeki sem lýsir straumi lífsins eins og vatni í á, sem rennur óstöðvandi áfram og tekur á sig ótal myndir.

Rými fyrir fjölskylduna
Þessi þriggja kynslóða fjölskylda átti land í Kawagoe, Saitama, í útjaðri Tókýó-borgar, þar sem aukin hraði borgarlífsins vék fyrir yfirveguðu landslagi hrísgjónaakra og gróðurhúsa á bökkum Shingashiárinnar. Í Japan er það munaður að eiga lóð þar sem meira en hundrað fermetra hús getur risið. Með slíkt tækifæri í höndunum, óskaði húsbyggjandinn helst af öllu eftir því að gera sameiginlega rými hússins mikilvægast þar sem ólíkar kynslóðirnar gætu átt samræður og samskipti og jafnframt, að hafa rými sérherbergja í lágmarki.
Þar sem það var einnig hluti af menningu húsbyggjandans, þá er hægt að færa rök fyrir því að arkitektinn endurtúlkaði hina hefðbundnu japönsku hugsun um hús. Ákveðin merking stendur fyrir orðið 'bústað' en hann táknar þak eða gáttina milli himins og jarðar. Þakið endurspeglar andrúmsloft staðarins og við loftið hafa hugsanir fólks nægt svigrúm. Auk þessa í hefðbundnum japönskum húsum, er viðkvæmt gólfið meðhöndlað sem það væri brú. Það er hluti af húsgögnunum og hefur samskonar vægi og veggirnir í evrópskum húsakynnum. Á þennan hátt, liggur grunnurinn að hýbýlum fólks í því andlega, í rýminu þar sem sálin nærist án hindrana. Hugmynd, sem átti rætur að rekja til Zen Búddismans og birtist í trúnni á að menn öðlist þekkingu með íhugun og innsæi.

Hús án herbergja
Eftir að hafa velt hugtakinu fyrir sér um sameiningu ólíkra kynslóða, kom Shigeru Ban fram með hugmynd um hálfgagnsætt skýli sem samanstóð af einu sameiginlegu rými en fjórir teningslaga klefar á hjólum gera persónulegt athafnasvæði fyrir hvern fjölskyldumeðlim. Þannig deila þrjár kynslóðir með sér húsinu, sem tekur sér til viðmiðunar svo ólíkar fyrirmyndir svo sem einsog, fjórar-og-hálf tatami motta - sem er grunneining hefðbundinnar japanskrar húsagerðar - og loft - sem sameinar það sem oft kallast drauma-húsnæði í vestrænni stórborg með því að afneita skilrúmum, sem hólfa niður og aðgreina, til þess að ná fram aukinni rýmisvídd.
Hægt er að skipuleggja hlutlaust rými hússins og umbreyta því eftir þörfum með því að hreyfa ferningslaga klefana en þeir geta jafnvel verið dregnir út í gegnum stóra gluggann á vesturhliðinni. Á þann hátt, og með því að leyfa hjólunum að vera sjáanlegum áhrifavöldum breytinganna, fær gólfflöturinn aukið vægi sem brú og tengiliður tjáskipta. Í austurenda hússins, næst yfirbyggða innganginum sem þjónar sem bílastæði, er komið fyrir baðherbergi, þvottahúsi og fataherbergi fyrir allan klæðnað fjölskyldunnar, þannig er komist hjá því að nota hverskonar klæðaskápa sem myndu hindra hreyfingar svefnklefanna. Eldhúsinu er einnig komið fyrir í þessum enda hússins en það er aðskilið frá sameiginlegum vistarverum með tjaldi.
Vegna þess hve húsið er líkt ásýndar og gróðurhúsin í kring, var hálfgagnsætt rými hannað til þess að vernda næði fjölskyldunnar frá óæskilegum augnagjóum út frá aðkomuleiðinni. Ytri hlið viðargrindarinnar, sem myndar burðargrindina, er klædd hálfgagnsæju báruplasti styrktu með trefjagleri, á meðan hliðin að innan er klædd bómullarefni sem er fest með frönskum rennilási til þess að auðvelda hreinsun. Með það að markmiði að hitaeinangra húsið samhliða að hleypa birtu inn í það, var holrýmið milli beggja flata veggjarins fyllt með mótuðu pólýester, sem í Japan er notað til þess að pakka ávöxtum. Þetta gerði arkitektinn eftir að hafa reynt mismunandi efni, eins og, tréflísar og leifar af endurunnum pappír. Þrátt fyrir að hafa nær engar opnanir á hliðum hússins, nýtur það sömu mjólkurhvítu birtunnar að innan eins og í öðrum japönskum byggingum með skilrúmum úr hrísgrjónapappír. Í raun eru einu ógagnsæju veggirnir þeir sem mynda ferningslaga svefnrýmin, sem eru klæddir sexstrengdum pappa.
Á sama hátt og hefðbundin japönsk hús eru ekki hugsuð sem varanlegur bústaður heldur frekar að íbúarnir hafi þar aðeins mislanga viðdvöl þar til aðstæður þeirra breytast, er Nakta-húsið táknrænt skýli, sem tekur sífelldum breytingum eins og streymi lífsins sjálfs.

Ljósmyndir: Hiroyuki Hirai
Myndmál:
a. Shigeru Ban (f. 1957), arkitekt.
b. Hægt er að skipuleggja hlutlaust rými hússins og umbreyta eftir þörfum með því að hreyfa ferningslaga klefana, sem geta jafnvel verið dregnir út í garð.
c. Nakta-húsið (2000) er umkringt hrísgrjónaökrum við Shingashiána.
d. Samkvæmt hefðbundinni menningu Japans, hafa hugsanir manna mest svigrúm við loftið.
e+f. Þróun hússins í gegnum ferli dagsins.
g+h+i. Mótað pólýester, sem í Japan er notað við pökkun ávaxta, var valið bygggingarefni sem í senn var einangrun og gat umlukið húsið á hálfgagnsæjan hátt.